Trivíaleikarnir

By: Daníel Óli
  • Summary

  • Trivíaleikarnir færa pub quiz stemninguna beint heim til þín, hvar sem þú ert og hvað sem þú ert að gera. Tvö tveggja manna lið etja kappi í léttri og skemmtilegri spurningakeppni þar sem spurningar um allt milli himins og jarðar dynja á keppendum. Hvort sem þú elskar pub quiz og spurningaspil eða veist varla hvað Gettu Betur er, að þá er eitthvað fyrir þig í Trivíaleikunum. Hlustaðu, hlæðu með okkur og lærðu eitthvað nýtt í leiðinni. Fáðu fleiri þætti með áskrift á Patreon: https://www.patreon.com/trivialeikarnir
    Daníel Óli
    Show more Show less
activate_Holiday_promo_in_buybox_DT_T2
Episodes
  • 38. Kanilhellar í Egyptalandi
    Nov 5 2024

    Þrítugasti og áttundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mætti stórgott lið Jóns Hlífars og Kristjáns sterku liði Arnórs Steins og Inga í Stúdíó Sánu. Ekki missa af þessari rjúkandi heitu skemmtun af hlaðvarpsþætti, komdu þér fyrir, ýttu á play og njóttu vel. Hvaða land sem liggur ekki að sjó (er landlukt) er stærst allra landluktra landa að flatarmáli? Hvers konar dýr er persónan fræga Tom Nook sem kemur fyrir í Animal Crossing tölvuleikjaseríunni? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.


    Keppendur: Arnór Steinn, Ingi, Jón Hlífar og Kristján.

    Show more Show less
    1 hr and 19 mins
  • 37. Ljúfmundur snýr aftur!
    Oct 2 2024

    Þrítugasti og sjöundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni hefur lukkudýr hlaðvarpsins snúið aftur í framhaldsþætti sem allir hafa beðið eftir! Marín Eydal og Arnór Steinn tókust á við sterkt lið Ástrósar Hindar og Kristjáns í gígantískum vitsmunaslag í hinu gamla og góða stúdíói 9A. Hvert er algengasta orðið í enskri tungu? Hvert er háværasta dýr jarðarinnar? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.


    Keppendur: Arnór Steinn, Marín Eydal, Ástrós Hind og Kristján.

    Show more Show less
    1 hr and 32 mins
  • 36. Hundrað ára mjálmsemd
    Sep 5 2024

    Þrítugasti og sjötti þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni mættu Magnús Hrafn, Ástrós Hind, Ingi og Kristján til leiks í stúdíó Sána. Ekki missa af þessari veislu og hlustaðu á hundrað mismunandi leiðir til að mjálma vitlaust. Undir hvaða listamannsnafni er tónlistarmaðurinn Richard Starkey betur þekktur? Hvað er Cosa Nostra? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.


    Keppendur: Magnús Hrafn, Ástrós Hind, Ingi og Kristján.

    Show more Show less
    1 hr and 35 mins

What listeners say about Trivíaleikarnir

Average customer ratings

Reviews - Please select the tabs below to change the source of reviews.